Farsældarlögin
Öll börn eiga rétt á að fá þá þjónustu sem þau þurfa þegar á þarf að halda en það getur verið flókið að fá aðstoð við hæfi og vita hvert eigi að leita eftir henni. Farsældarlögin eiga að tryggja að börn og foreldrar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum.
Markmiðið með lögunum er að bæta enn frekar þjónustu við börn og fjölskyldur svo þau fái notið þeirrar aðstoðar sem þau eiga rétt á um leið og þess gerist þörf. Með samþættri þjónustu er hægt að bjóða barni upp á skipulagða og samfellda aðstoð sem mætir þörfum þess hverju sinni.
Tengiliður í leikskólanum Sjáland er:
Bergdís Björk Steindórsdóttir, sérkennslustjóri – bergdis@sjaland.is
Öll börn og foreldrar skulu hafa að tengilið eftir því sem þörf krefur. Tengiliður hefur viðeigandi þekkingu til að geta verið foreldrum og barni innan handar. Hann ráðleggur þeim og aðstoðar við að rata í gegnum kerfið og sækja þjónustu við hæfi.
Hér eru upplýsingar um farsæld barna í Garðabæ:
